top of page

MEIÐUR

Meiður var lokaverkefni fyrri annar. Um var að ræða sköpun á kynningarefni fyrir nýtt íslenskt fyrirtækið. Í mínu tilfelli varð fyrir valinu handverksverslun sem opna átti í byrjun desember og lagði ég því áherslu á handgerðar vörur úr íslenskum við. Í upphafi fór í gang hugmyndavinna þar sem nafn á fyrirtæki var valið sem og einkunnarorð. Meiður var nafnið sem ég valdi.
Eftir eiginlega hönnunarvinnu hófst gerð á kennimerki en mér fannst það þurfa að vera nútímalegt og lýsa vel tilgangi fyrirtækisins. Meginhluti verkefnisins sneri að auglýsingaherferð fyrir Meið.
Útbúa átti A5 bækling fyrir birgja, A4 bækling, skjámiðlaauglýsingu auk plakats og dagblaðsauglýsingar. Afraksturinn má sjá hér að neðan og er ég sérlega stolt af útkomunni.
bottom of page
