top of page

EMBLA

Embla er einstaklingsverkefni sem hver nemandi vinnur. Síður úr Emblu fara svo í tímaritið Ask sem er sameiginlegt  tímarit og er gefið út í lok annar. Hver nemandi setur upp 9 efnissíður og eina síðu með leiðara, blaðhaus og efnisyfirliti, auk kynningaropnu. Það að auki á hver nemandi að hanna og setja upp fjórar kápusíður. Samtals eru þetta því 12 síður.

Ég lagði mikla vinnu í forsíðuna og grafík sem ég gerði af La Palenquera varð fyrir valinu. La Palenquera eru konur af kólumbískum/afrískum uppruna og eru götusalar sem með gleði og brosi selja suðræna ávexti. Í grafíkmyndinni ber konan ávaxtakörfu á höfðinu og er syngjandi auk þess sem lundi stendur ofan í körfunni fullri af sætindum.


San Basilio de Palenque, er fyrsti bær frjálsra Afríkubúa eða fyrrum þræla og þaðan kemur nafnið La Palenquera. Þær klæðast kólumbíska þjóðbúningnum sem er mjög litríkur og fallegur. Það eru ýmsar útfærslur til af þjóðbúningnum en á minni forsíðu vildi ég hafa kjólinn í stíl við kólumbíska fánann. Ástæða þess að ég hef lunda sitjandi í ávaxtakörfunni er sú að ég er einstaklega hrifin af lundum og mér fannst tilvalið að blanda honum við til þess að blanda saman einkennum tveggja landa.

197a2d4e226e7bbbeabf55e8d10bc362.jpg
Forsíða_edited.jpg
3a848d8b14b4671e64a6d73c2c364fc8.jpg
bottom of page